Ferill 1053. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 1532  —  1053. mál.




Fyrirspurn


til umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra um sölu rafmagnsbíla.

Frá Indriða Inga Stefánssyni.


     1.      Hvaða áhrif hefur hrun í sölu rafmagnsbíla á fyrsta ársfjórðungi 2024 á áætlanir ríkisstjórnarinnar í loftslagsmálum?
     2.      Hyggst ráðherra bregðast við þessari nýju stöðu með einhverjum hætti? Ef svo er, hvernig? Ef ekki, hvers vegna ekki?


Skriflegt svar óskast.